6.flokkur Karla fór
á Shellmótið í eyjum eftir meira en 10 ára hlé og gekk það alveg
hreint út sagt eins og í sögu. Veðrið var frábært og fínn
árangur náðist hjá strákunum innan sem utan vallar. Við lögðum í
hann á miðvikudegi klukkan 8 um morguninn á rútunni frægu svo
við yrðum á réttum tíma því báturinn fór klukkan 12 frá
Þorlákshöfn. Sjóferðin gekk bara vel og strákarnir eiga hrós
fyrir það hvernig þeir hegðuðu sér í bátnum. Þegar að til eyja
var komið fórum við upp í skóla og komum okkur vel fyrir, fórum
að borða og skoðuðum okkur aðeins um.
Á Fimmtudeginum hófst svo mótið sjálft og fyrstu
leikina unnu B-liðið Fjölnir 4-1 og C-liði
vann sinn leik við Fjölnir 2-1 og D liðið
spilaði skrítnasta leik sem ég hef séð. Þeir voru spiluðu
rosalega vel í fyrri hálfleik og voru yfir 3-1 í hálfleik en
í þeim seinni þá kom annað lið inn á völlinn og þeir töpuðu
leiknum 15-3 á móti Fjölni. Veðrið lék við
okkur allan tíman og þá fylgir góða skapið alltaf með.
Strákarnir fóru í sund eftir matinn og voru frekar þreyttir í
seinni leikjum dagsins og kom það niður á úrslitum leikja.
B-liðið lenti undir 3-0 undir á móti Stjörnunni en komu svo
brjálaðir til baka í seinni hálfleik og náðu að jafna leikinn
4-4, frábær karakter. C-liði tapaði sínum
leik á móti ÍBV 2-1. og D-liðið tapaði sínum leik 11-2 á móti
Stjörnunni .
Við fórum í rútuferð,
siglingu, skoðuðum eyjuna, fórum í hellirinn fræga og
hlustuðum á Simma spila á saxafón. Maturinn alla helgina var
frábær og eiga þær mikið hrós fyrir það og alltaf hressar og
skemmtilegar. Eftir það fórum við á setninguna sem var alveg
stórskemmtileg og fórum á völlinn í skrúðgöngu þar sem við
sungum hátt og mikið. Stjörnuleikur Ómars Ragnarssonar á móti
þjálfurum var mikil skemmtum og þjálfari Reynir/Víðis lét
ekki sitt eftir liggja þegar að hann smellti boltanum í
sammarann við mikinn fögnuð
áhorfenda.
Föstudagurinn byrjaði
snemma og spilaði B-liði á móti Breiðablik og sigruðu 3-2.
C-liðið spilaði skemmtilegan leik á móti Breiðablik en töpuðu
2-1 og D-liðið spilaði á móti Breiðablik og fengu stórann
skell 8-1. B-liðið spilaði svo seinni
leikinn á móti Haukum og unnu þeir 12-2 í hörku leik. C-liðið
spilaði á móti Fram og unnu 4-1 frábær leikur hjá þeim og
sýndu þeir að það er gaman spila skemmtilegan bolta. D liðið
spilaði á móti Fram og stóðu þeir sig
alveg eins og hetjur og unnu frábærann sannfærandi sigur 8-2.
Eftir þetta fórum við á innanhúsmótið og það gekk sæmilega en
A liðið vann einn og tapaði einum, B liðið gerði tvö
jafntefli og C- og D liðin töpuðu
báðum.
Eftir allt þetta
tók svo við vel heppnuð kvöldvaka.
Laugardagurinn
spiluðum við síðasta leikinn okkar í riðlinum og gekk það
misvel. B-liðið voru sigurvissir en töpuðu á móti Keflavík
2-1. En C-liðið ætlaði ekki að gera það sama og unnu sinn
leik 6-1 og var alveg frábært að sjá til þeirra.
Leikgleðin skein af þeim og þeir fögnuðu öllum
mörkunum mjög skemmtilega. D- liðið spilaði á móti
ÍBV og stóðu sig alveg frábærlega og komust
í 2-0 en í seinni hálfleik þá datt aðeins botninn úr þessu
hjá þeim en þeir börðust eins og ljón allan tíman en töpuðu
2-4
Eftir
hádegið spiluðu B og C liðinn í átta liða úrslitum og D liðið
í umspili. B-liði spilaði við HK og voru allan leikin með
yfirhöndina en þeir jöfnuðu undir lokinn 4-4 og fóru áfram á
marki skorað á undan í hálfleik, ósanngjörn regla en lítið
við því að gera. C-liðið spilaði við
Selfoss og voru teknir í kennslustund og töpuðu 6-1. D-liðið
spilaði á móti Val og voru hræðilegir að sjá í fyrri hálfleik
bara nenntu þessu engan veginn 4-0 í hálfleik en í þeim
síðari komu þeir til baka og minnkuðu muninn í 4-2 . Við
fórum svo á Pizza 67 og fengum okkur að borða öll saman en þá
var eins og það hefði komið einhver villingur í strákana sem
voru búnir að vera svo stilltir allan tíman. Svo fórum við í
Þrautakeppnirnar og það bara mikil og góð
skemmtun.
Þá var komið að
stóru stundinni og það var Landsliðið á Móti Pressuliðinu .
Sindri Þór Guðmundsson var valinn í Pressuliði og var einni
fyrirliði liðsins. Haraldur Sigfús Magnússon var einnig
valinn til þess að stjórna Pressuliðinu. Og það má til gamans
geta að eftir að hafa lent 3-0 undir þá tók Sindri Þór af
skarið og skoraði frábært mark og Pressuliðið með okkar
mönnum innanborðs vann leikinn 3-4.
Á
sunnudeginum spiluðum við svo um sæti á mótinu. B-liðið
spilaði stórskemmtilegan leik við Þrótt R og gerðu þar
jafntefli 2-2 en unnum þá á sömu reglu og við töpuðum á degi
áður. Þar með enduðum við í 5 sæti B-liða. C-liðið
spilaði við ÍBV og töpuðu þeim leik 2-0 í bragðdaufum leik
þar sem þeir voru gersamlega búnir á því. og enduðu í 7.sæti
C-liða. Síðast en ekki síst þá spilaði D-liði um 9 sætið
og vann ÍBV 7.flokk 6-0 . þar voru
þeir að spila við jafnaldra sína og þeir gerðu sér lítið
fyrir og rúlluðu þeim upp.
Eftir mótið fórum
við svo á velheppnað lokahóf þar sem við fengum ein verðlaun
og það var 6 mánaða áskrift á sýn. Veit ekki fyrir hvað þessi
verðlaun voru veitt en við vorum dregnir út. Við fórum svo í
góðan göngutúr upp á molda eftir verðlauna afhendinguna og
fórum svo heim !!
Frábært mót og
þetta er eitthvað sem að þeir eiga eftir að muna eftir allt
sitt líf. Og ég vill bara segja takk fyrir mig. Farastjórar,
foreldrar, mótshaldarar og krakkar öll með tölu
..